Um aðildarviðræður ESB og aðkomu AGS

Ég held það hafi sýnt sig í mörgum málum þessa síðustu og verstu að þau viðmið, reglur og lög sem áður hafa gilt þurfa nú endurskoðun. Það gildir einnig um afstöðu ESB og meginreglur þeirra. Nú er einmitt rétti tíminn að ögra slíkum meginreglum. Af hverju má ekki kanna hvort þetta er hægt? Ég gef ekkert fyrir ummæli einhvers fulltrúa ESB. Ég segi að það eigi að skoða þennan möguleika til fulls áður en hann er sleginn út af borðinum.

Bara slæmir kostir fyrir hægrisinna í komandi kosningum

Ég er hægrisinnaður, trúi á frjáls viðskipti, frelsi einstaklingsins til athafna og mátt fólksins. Ég er ekki íhaldssamur, fagna nýjum hugmyndum og trúi því að óvissan leiði af sér ný og áhugaverð tækifæri. Ég hafna stóriðjuframkvæmdum algjörlega.
Ég er sjálfstæðismaður sem get ekki hugsað mér að kjósa Sjálfstæðisflokkinn í komandi kosningum. Ég mun heldur ekki kjósa Vinstri græna þar sem grundvallarsjónarmið og stefna þeirra eru eins langt frá minni eins og vera getur. Þá eru bara tveir slæmir kostir eftir, Samfylkingin og Framsókn.

Hugvitsstóriðja

Útkoma kosninganna voru skýr skilaboð til Framsóknar (og Sjálfstæðisflokks). Slakið á stóriðjuframkvæmdum.

Ég fór aðeins yfir þetta með sjálfum mér fyrir kosningar og fram að þessu hef ég verið á móti stóriðjuframkvæmdum. Mér fannst ég hins vegar þurfa að skoða af hverju nákvæmlega og svarið liggur í tegundinni. Álframleiðsla! Það er iðnaðurinn sem truflar mig meira en einhver umhverfismál eða annað. Hvað stóriðju varðar (ég er í raun ekki klár hvað orðið stóriðja stendur nákvæmlega fyrir), en þá má vel hugsa sér hugvitsstóriðju. Stórar hugbúnaðarverksmiðjur úti á landi. Við höfum verið að flytja inn erlent vinnuafl til verkframkvæmda, í fiskvinnslu og annarra láglaunastarfa. Á sama tíma erum við að byrja að flytja hugbúnaðarverkefni út, til austur-evrópu og asíu.

Af hverju ekki að flytja inn þetta vinnuafl líka. Mennta okkar fólk í skipulagsfræðum, verkfræðum, tölvunarfræðum og stjórnun. Og reka hér stórar hugbúnaðarverksmiðjur fyrir innlendan og erlendan markað. Þætti færi líka vel við nýjar hugmyndir um að reka hér vefþjónasetur fyrir Yahooooo!!! W00t 

Hvað með að setja upp hugbúnaðarverksmiðjur úti á landi? Við getum alveg eins flutt inn vinnuafl frá Austur-Evrópu eða jafnvel Asíu til að vinna í hugbúnaðarverksmiðjum eins og í fiskvinnslu eða stóriðju. Þetta myndi hugsanlega nýtast innlendum markaði betur, en miðað við hvernig vex hef ég engar áhyggjur að þetta ætti ekki að ganga upp.

Fyrir nokkrum árum, var í umræðunni að Ísland gæti verið eins konar pilot markaður fyrir hátækni. Af hverju varð aldrei neitt úr þeim umræðum. Við myndum njóta góðs af nýrri tækni og værum jafnframt tilraunadýr fyrir nýjar og áhugaverðar uppgötvanir á heimsvísu. Hér yrðu hlutirnir til, hér myndi skapast umhverfi og samfélag þar sem sköpun og hugmyndaauðgi væri allsráðandi.

Málið er skýrt, þeir sem sitja á þingi hafa einfaldlega ekki þetta hugmyndaauðgi. Hópurinn sem situr á þingi hugsar of mikið í gömlu málefnunum og ekki í hvaða iðnaður verður alls ráðandi í framtíðinni. Mér finnst það nokkuð ljóst að upplýsingatækniiðnaður og fjármálaiðnaðurinn eru veðhestarnir mínir. Mér leist vel á Framtíðarlandið og þær hugmyndir sem menn voru að ræða þar, en svo einhvern veginn dó það. Eitthvað varð til sem fékk nafnið Íslandshreyfingin, var það sama fólkið eða bara umhverfissinnarnir? Hvað varð um hátækniumfjöllunina? Ég reikna með að þeir sem komu henni að hafi einfaldlega verið of uppteknir við vinnu og ekki mátt vera að þessu pólitíska poti.

Okkur bráðvantar fleiri hugsjónamenn á þing og ekki bara lögfræðinga og sveitunga. Mér finnst það líka áhugavert hvað gerðist í þessum kosninga með Árna Johnsen og Björn Bjarna. Það að þeir hafi fengið svona margar útstrikanir er leið fólksins til að gefa álit á einstaklingum og um leið aðferð til að gera kosningarnar einstaklingsmiðaðar. Af hverju megum við þá ekki raða fólkinu upp líka? Það er kannski of flókið. Og segið mér annað, Hvernig stendur á því að lítið þjóðfélag eins og okkar, tölvuvædd og netvædd eins og við erum, að það sé ekki hægt að kjósa rafrænt? Þetta er bara hlægilegt og segir meira en margir gera sér grein fyrir.

kveðja, Sigurjón  

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband